14.11.2006 | 22:24
Áframhaldandi fýla
Eftir að vera búin að leita af mér allan grun settist ég bara niður og fór í fýlu yfir að hafa týnt símanum mínum. Svo mikla fýlu að ég bara steingleymdi að fara á Bjarg, ætlaði í Body Pump. Er bara nýbúin að fatta það! Þetta er nú meira ástandið, þessir símar geta slegið mann alveg út af laginu.
Annars er heilmikið að gera framundan og þá aðallega hvað át varðar. Þetta er rosalega! Tvær árshátíðir (MA og Rafteikning), jólahlaðborð (MA), julefrokost (Rafteikning) og afmælið hans Jens. Svo fer bara að styttast í jólin líka. Þetta er alveg rosalegt. Verður ábyggilega allt alveg rosalega skemmtilegt en þetta er nú helst til mikið af mat samt.
Athugasemdir
Veistu, þetta er ömurlegt með símann. En mér líst vel á þennan sem þú sýndir mér í dag ;)
Sammála líka með matinn... þú verður eiginlega að svelta á milli veisla.. ég þyrfti alla vega að gera það :D
Lára (IP-tala skráð) 17.11.2006 kl. 17:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.