... ert þú ekki að austan

Þessi helgi er búin að vera sérstaklega fín verð ég að segja.

  • Búin að slappa vel af
  • Borðaði helling
  • Keypti mér sjúklega flott svört stígvél
  • Fór í ákaflega skemmtilegt partý
  • Fór í 2 matarboð
  • Svaf helling (maður sefur þó sjaldan nóg)
  • Kíkti aðeins á Kaffi Ak, þar var dularfullur drengur sem var alveg harður á því að ég væri að austan, ég er nú nokkuð viss um að svo sé ekki

Á morgun er ég að fara í klippingu. Hlakka svo mikið til að mig hefur dreymt klippingu núna seinustu tvær nætur. Auk brjálaðra búlgara sem ætla að drepa mig en ég lokka inn í Kárahnjúkastíflu þar sem þeir lokast inni og ég slepp!

Allavega, ný vika að byrja en það verður samt komin helgi aftur áður ein ég veit af. Svo góða viku og góða helgi! 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta var góð helgi, gott partý og tjúttið alveg frábært á kaffi ak ;)

Lára (IP-tala skráð) 13.11.2006 kl. 15:23

2 identicon

Sammála, gott partý og gaman að kíkja út þó að ég væri reyndar að kafna úr reykmengun! Kveðja, Ingibjörg

Ingibjörg (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 14:55

3 identicon

Heyrðu, þú þarna að austan. Ætlarðu ekki að fara að blogga?

Fríður Finna (IP-tala skráð) 14.11.2006 kl. 17:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband