9.10.2006 | 17:13
Nýtt útlit
Breytti útlitinu á síðunni minni. Langar í klippingu en tími því ekki. Þá er ágætis tilbreyting að breyta allavega útlitinu á síðunnu, er það ekki?
Var bara dugleg um helgina. Á fim kvöld fór ég á tónleika með Herði Torfa (með Völlu og Unnar Þór), á fös kvöld var hittingur hjá spilafíklum úr skólanum ;) heima hjá mér og á lau kvöld var það út að borða og partý. Merkilega menningarleg helgi, jah fyrir utan kannski partýið á laugardag. Þar var reyndar tekin góð syrpa í Gonzales Gonzales, einhverri poppaðri útgáfu af Olsen Olsen. Svindlaði eins og ég mögulega gat allt spilið og enginn tók eftir neinu. Ég ætti að svindla oftar í spilum, þetta var gaman! Laumaði spilum yfir á næsta mann (sorrý tommi) og lagði niður 2 þegar ég átti bara að leggja niður eitt o.s.frv. Ágæt helgi sko en frekar fljót að líða. Vikan byrjaði frekar illa. Vaknaði kl 6 í morgun við það að ég fékk sms, sofanði ekki almennilega eftir það (var svo spennt að vita hvaða sms ég var að fá - ég veit, ég er allt of forvitin!)
Athugasemdir
Barnalegt að svinlda svona... skil ekkert í þér!
Mummi (IP-tala skráð) 10.10.2006 kl. 12:32
Hmm, ef til vill. Ætti að taka Anton mér til fyrirmyndar og fara að bora skrúfur í matvæli ;)
Anna Panna, 10.10.2006 kl. 13:27
???
Fríður Finna (IP-tala skráð) 14.10.2006 kl. 11:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.