Eitt skil ég ekki...

Þegar við keyptum íbúðina sóttum við um vaxtabætur. Nú höfum við tvisvar fengið vaxtabætur en alltaf rukkar skatturinn okkur um þær til baka með álagningarseðlinum sem "ofgreiddar vaxtabætur". Mér er ómögulegt að skilja afhverju hann borgar okkur þær til að byrja með. Skilur þetta einhver? Er ekki bara langbest að sleppa því að borga okkur vaxtabætur svo að það þurfi ekki að rukka okkur aftur um þær??

.... spyr ein sem ekki veit

Sem betur fer var enginn skattmann að hrella okkur á Hálsi á föstudagskvöldið. Magnað kvöld maður! Þvílíkt útsýni!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála. Ég skil heldur ekki af hverju ríkið rukkar ekki eða borgar út nettó stöðuna, staðinn fyrir að borga út plúsinn en rukka mann svo um mínusinn í marga mánuði á eftir. Undarlegt...

Valdís (IP-tala skráð) 31.7.2006 kl. 10:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband